Það hefur lítið gengið upp hjá PSG undanfarið en liðið féll úr leik í Meistaradeildinni eftir tap gegn Bayern Munchen fyrir rúmri viku síðan.
Liðið tapaði fyrir rúmum mánuði síðan gegn Monaco í deildinni en hafði unnið fjóra deildarleiki í röð fyrir viðureign gegn Rennes í dag.
Kylian Mbappe kom boltanum í netið eftir rúmlega 20 mínútna leik en markið var réttilega dæmt af þar sem hann var vel fyrir innan vörnina þegar hann fékk boltann.
Rennes komst yfir í leiknum undir lok fyrri hálfleiks og tvöfaldaði forystuna strax í upphafi síðari hálfleiks.
Það vakti athygli fyrir leikinn þegar Lionel Messi var kynntur til leiks virtist stór hluti stuðningsmanna PSG baula á hann.
Eins og staðan er núna er PSG með sjö stiga forystu á toppnum á Marseille sem er 2-1 yfir gegn Reims þegar um það bil stundarfjórðungur er til leiksloka.
Messi getting booed by the PSG fans lmaooooooooo pic.twitter.com/VOD3Imso6X
— Albi ???????? (@albiFCB7) March 19, 2023