Bukayo Saka skoraði tvö mörk í 4-1 sigri Arsenal gegn Crystal Palace í gær. Mikel Arteta sagði að Saka hefði ekki verið sáttur í leikslok þar sem hann vildi skora þrennuna.
Arsenal er með 8 stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni og hefur unnið sex leiki í röð í deildinni. Liðið aftur komið á sigurbraut eftir vonbrigðin í Evrópudeildinni í vikunni.
„Hann var svekktur að skora ekki þrennuna. Þetta er það sem við þurfum. Við þurfum að fá framherjana til að skora og gera gæfumuninn og þeir gerðu það í dag," sagði Arteta.
Gabriel Martinelli og Granit Xhaka skoruðu sitt markið hvor. Martinelli hefur nú skorað sex mörk i síðustu sex leikjum.
Athugasemdir