Fotbolti.net
19.07.21 - 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ísland í dag - Heldur gott gegni Leiknis á heimavelli áfram?

Hilmar Árni mætir á sinn gamla heimavöll.

Hilmar Árni mætir á sinn gamla heimavöll.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það eru tveir leikir á dagskrá í Pepsi Max-deildinni þennan mánudaginn.
Þetta eru tveir síðustu leikirnir í 13. umferð deildarinnar.

Allir fjórir sigurleikir Leiknis í sumar hafa komið á heimavelli en þeir eiga heimaleik í dag á móti Stjörnunni. Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, kemur á gamla heimavöll sinn. Fyrir leikinn er Leiknir í sjöunda sæti og Stjarnan í níunda, en það munar aðeins einu stigi á liðunum.

Víkingur og Keflavík eigast við á sama tíma. Fyrir þann leik er Víkingur í öðru sæti og Keflavík í áttunda sæti en stöðutöfluna má sjá í heild sinni hér að neðan.

mánudagur 19. júlí

Pepsi Max-deild karla
19:15 Leiknir R.-Stjarnan (Domusnovavöllurinn)
19:15 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.