Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
   mán 19. ágúst 2019 20:27
Arnar Helgi Magnússon
Arnar Gunnlaugs: Okkur vantaði 5% á öllum sviðum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson var svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Kristján Flóki skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.

„Þetta var svekkjandi. Fyrri hálfleikur var svona bardagaleikur, það var lítið um gæði fótboltalega séð. Við vorum svolítið undir í baráttunni, krakkarnir voru að spila," sagði Arnar og hlær.

Lestu um leikinn: KR 1 -  0 Víkingur R.

„Í síðari hálfleik höfðum við talsverða yfirburði á boltann án þess þó að skapa okkur afgerandi færi. Það vantaði smá herslumun. KR bakkaði og bakkaði og þeir voru greinilega mjög þreyttir. Heilt yfir var þetta ekki besti leikur í heimi."

„Mér fannst smá 'bikarþynnka' í báðum liðum. Okkur vantaði svona 5% á öllum sviðum til þess að geta unnið leikinn. Til hamingju KR-ingar."

Arnar segir að KR liðið sé stútfullt og af reynslu og þeir kunni manna best að vinna svona leiki.

„Það eru meistarar í KR-liðinu sem að kunna þetta. Þeir drápu leikinn niður í síðari hálfleik og nýttu sér alla sína reynslu."

Nánar er rætt við Arnar í spilaranum hér að ofan.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner