Laugardagsslúðrið er mætt og er pakkinn þokkalega þéttur, allt í boði Powerade og tekið saman af BBC.
Manchester United hefur ná samkomulagi við Alex Telles (27) hjá Porto og gæti Brasilíumaðurinn skrifað undirfimm ára samning. (RMC Sport)
PSG hefur einnig áhuga á Telles. (O Jogo)
Einhverjum leikmanna Real Madrid er létt að Gareth Bale sé loksins farinn frá félaginu. (AS)
Rennes vill fá tvo leikmenn frá Chelsea ef franska félagið á að sleja Edouard Mendy (28) til Lundúna. Fikayo Tomori (22) er annar þeirra. (Football Insider)
Liverpool hefur spurst fyrir hvort hægt sé að fá Ousmane Dembele (23) að láni frá Barcelona. (Sport)
Sheffield United hefur rætt við Liverpool um að fá Rhian Brewster (20) að láni. (Yorkshire Live)
Manchester City er að íhuga að fá Jules Kounde (21) miðvörð Sevilla. Nicolas Otamendi (32) gæti farið til Sevilla í staðinn. (Telegraph)
Said Benrahma gæti farið til Crystal Palace í kjölfar sölu Palace á Alexander Sorloth til RB Leipzig. (Guardian)
Danny Ings (28) er 100% ekki til sölu segir Ralph Hasenhuttl, stjóri Southampton. (Daily Echo)
Leeds hefur enn áhuga á Rodrigo de Paul (26) miðjumanni Udinese. (Fabrizio Romano)
Juventus skoðar að fá Moise Kean (20) aftur frá Everton. (Goal)
Lyon gæti boðið Memphis Depay (26) til AC Milan í skiptum fyrir Lucas Paqueta (23) miðjumann Milan. (Di Marzio)
Athugasemdir