U21 landsleik Færeyja og Norður-Makedóníu hefur verið frestað vegna kulda.
Mikið frost hefur verið í Færeyjum undanfarna daga og gervigrasið á Þórsvelli er frosið.
Mikið frost hefur verið í Færeyjum undanfarna daga og gervigrasið á Þórsvelli er frosið.
Dómarar leiksins skoðuðu aðstæður í hádeginu í dag og gáfu síðan út að ekki yrði hægt að spila leikinn í dag.
Norður-Makedónar halda heim á leið í fyrramálið og nú er ljóst að þeir þurfa að koma aftur síðar til Færeyja að spila leikinn.
Ekki er búið að ákveða hver nýr leikdagur verður.
Athugasemdir