Gianluigi Buffon vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil á Ítalíu árið 1999 en þá lék hann fyrir Parma. Meðal samherja hans þá var Enrico Chiesa en í gær varð Buffon bikarmeistari með syni hans.
Federico Chiesa skoraði sigurmark Juventus í sigri gegn Atalanta í bikarúrslitunum í gær.
Buffon, sem er 43 ára, lék væntanlega sinn síðasta leik fyrir Juventus í gær. Hann hefur sex sinnum orðið ítalskur bikarmeistari og jafnaði þar með met Roberto Mancini.

Buffon vann keppnina 1999 með Parma og svo fimm sinnum með Juventus, fyrst 2015.
Þegar Buffon vann keppnina með Enrico Chiesa þá var Federico ekki orðinn tveggja ára gamall.
Juventus have not lost a game with Buffon on the pitch this season: 14 Games, 12 Wins, 2 Draws, 0 Lost. LEADER. 🔥⚫⚪ pic.twitter.com/qmBkhMjpeS
— Forza Juventus (@ForzaJuveEN) May 19, 2021
Athugasemdir