Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. maí 2021 18:44
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Venezia í úrslit umspilsins - Mæta Cittadella eða Monza
Bjarki Steinn Bjarkason var á bekknum hjá Venezia
Bjarki Steinn Bjarkason var á bekknum hjá Venezia
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Venezia er komið í úrslit umspilsins í Seríu B eftir að hafa unnið Lecce samanlagt, 2-1. Venezia mætir Cittadella eða Monza í úrslitaleik um sæti í Seríu A.

Venezia vann fyrri undanúrslitaleikinn gegn Lecce, 1-0, er liðin mættust á heimavelli Venezia.

Það var mikil spenna í leiknum í kvöld en Venezia komst yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki úr vítaspyrnu áður en Stefano Pettinari jafnaði metin um miðjan síðari hálfleik.

Lecce fékk fullkomið tækifæri til að komast í 2-1 á 80. mínútu er liðið fékk vítaspyrnu. Marco Mancuso þrumaði knettinum hins vegar yfir markið.

Venezia í úrslit umspilsins ar sem liðið mætir Monza, sem er í eigu Silvio Berlusconi, fyrrum forsætisráðherra Ítalíu, eða Cittadella.

Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlsson eru á mála hjá Venezia en Bjarki var allan tímann á bekknum í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner