Fotbolti.net
20.06.18 - 22:58
Stefán Marteinn Ólafsson

Brynjar Björn: Ekkert farnir að spá í Pepsí 2019

Auglýsing
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK

Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK-ingar ger&eth;u g&oacute;&eth;a fer&eth; su&eth;ur til Njar&eth;v&iacute;kur &thorn;ar n&aacute;&eth;u &thorn;eir &iacute; g&oacute;&eth; 3 stig og styrktu st&ouml;&eth;u s&iacute;na &iacute; toppbar&aacute;ttu Inkasso deildar karla. Brynjar Bj&ouml;rn &thorn;j&aacute;lfari HK var a&eth; vonum s&aacute;ttur me&eth; sigurinn.<br />
<em><span style=\"caret-color: rgb(0, 0, 0); color: rgb(0, 0, 0); font-family: Arial; font-size: 14px;\">&bdquo;&Aacute;n&aelig;g&eth;ur me&eth; stigin 3, frammista&eth;an var g&oacute;&eth;, vi&eth; g&aacute;fum l&iacute;ti&eth; af f&aelig;rum &aacute; m&oacute;ti okkur og vi&eth; n&yacute;ttum &thorn;a&eth; sem vi&eth; fengum, &thorn;a&eth; var enginn urmull af f&aelig;rum hj&aacute; hvorum li&eth;um &iacute; &thorn;essum leik en vi&eth; n&yacute;ttum okkar f&aelig;ri &iacute; leiknum.&quot;</span></em><br />
Þessi leikur verður seint sakaður um að hafa yfirbugað fólk með skemmtanargildi en HK gerði nóg.

„Já við gerðum nóg en það kom ágætis spil inni á milli en var kannski svolítið endaslappt án þess að það kom eitthvað mikið út úr því, en var mjög ánægður með okkur varnarlega."



Njarðvíkingar hafa verið að koma einhverjum á óvart en Brynjar Björn vildi þó ekki meina að þeir hefðu komið sér á óvart.

„Nei, ekkert sérstaklega en við höfum séð þá tvisvar-þrisvar spila og þeir geta vel spilað boltanum og eru góðir inn á miðsvæðinu og leysa stöðurnar oft vel þar þannig við vissum svolítið að hverju við gengum og vorum búnir að undirbúa okkur fyrir það."



HK-ingum er af flestum spáð því að fara upp í Pepsi deildinna að ári ásamt Skagamönnum en Brynjar Björn vill ekki meina að þeir séu farnir að spá í það enþá.

„Ekki í nokkar sekúndur nei, við tökum þetta svolítið leik fyrir leik og erum búnir að spila vel hingað til og vonandi höldum við því áfram en mótið er ekki einusinni hálfnað svo við erum svosem ekki mikið farnir að pæla í því."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.