Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 21. apríl 2021 11:42
Magnús Már Einarsson
De Boer líkir Kristian Nökkva við De Bruyne
Mynd: Hulda Margrét
Ronald de Boer, fyrrum leikmaður hollenska landsliðsins, hefur hrifist mjög af Kristian Nökkva Hlynssyni hjá Ajax.

De Boer starfar sem þjálfari í yngri liðum Ajax og Kristian Nökkvi hefur hrifið hann.

De Boer var í viðtali hjá ESPN í gær þar sem hann ræddi um efnilega leikmenn sem eru að koma upp hjá Ajax.

„Hann er íslenski Kevin De Bruyne," sagði De Boer um Kristian Nökkva.

Hinn 17 ára gamli Kristian Nökkvi kom til Ajax frá Breiðabliki í febrúar 2020 en hann hefur nú þegar fengið tækifæri til að æfa með aðalliði hollenska stórliðsins.
Athugasemdir
banner
banner