Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
miðvikudagur 22. apríl
Besta deildin
laugardagur 18. apríl
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
þriðjudagur 21. apríl
Championship
Stoke City - Millwall - 18:45
QPR - Swansea - 18:45
Coventry - Portsmouth - 18:45
Southampton - Bristol City - 18:45
Oxford United - Wrexham - 18:45
West Brom - Watford - 18:45
Leicester - Hull City - 18:45
Norwich - Derby County - 18:45
Úrvalsdeildin
Brighton - Chelsea - 19:00
Bikarkeppni
Inter - Como - 19:00
La Liga
Real Madrid - Alaves - 19:30
Athletic - Osasuna - 17:00
Mallorca - Valencia - 17:00
Girona - Betis - 19:30
þri 21.apr 2026 15:00 Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 5. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fimmta sæti er HK og komast þeir í umspilið ef spáin rætist.

Fyrir leik á síðasta tímabili.
Fyrir leik á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Heiðar er tekinn við HK.
Gunnar Heiðar er tekinn við HK.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Þorsteinn Aron Antonsson.
Miðvörðurinn Þorsteinn Aron Antonsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dominik Radic á að skora mörkin.
Dominik Radic á að skora mörkin.
Mynd/HK
Þorvaldur Smári er efnilegur leikmaður.
Þorvaldur Smári er efnilegur leikmaður.
Mynd/HK
Arnþór Ari er reynslumikill og hefur verið lengi hjá félaginu.
Arnþór Ari er reynslumikill og hefur verið lengi hjá félaginu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Gunnar kom á láni frá Stjörnunni.
Sigurður Gunnar kom á láni frá Stjörnunni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Hrafn þekkir vel til í Kórnum.
Atli Hrafn þekkir vel til í Kórnum.
Mynd/HK
Hvað gerir HK í sumar?
Hvað gerir HK í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. HK, 158 stig
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

5. HK
HK fer inn í Lengjudeildina þetta sumarið með skýran metnað eftir að hafa farið alla leið í úrslit umspilsins í fyrra, þar sem draumurinn um sæti í efstu deild rann þeim úr greipum á lokametrunum. Þeir áttu ekki mikinn möguleika í Keflavík í úrslitaleiknum og urðu að gera sér það að góðu að vera áfram í næst efstu deild. Það var þó tímabil sem sýndi að liðið hefur burði til að komast upp og væntingarnar eru því eðlilega til staðar. HK er spáð 5. sæti, sem setur þá í hóp þeirra liða sem gætu hæglega blandað sér í toppbaráttuna. Breytingar hafa orðið fyrir tímabilið, þar sem nýr þjálfari hefur tekið við keflinu. Áfram er það þó Eyjamaður sem stýrir skútunni og því má gera ráð fyrir því að það verði mikil stemning í Kórnum í sumar. Ef HK nær að byggja ofan á það sem gekk vel í fyrra og bæta enn frekar ofan á það, þá er alls ekki ólíklegt að þeir verði í Bestu deildinni að ári.

Þjálfarinn: Gunnar Heiðar Þorvaldsson var fenginn í það verkefni að taka við af Hermanni Hreiðarssyni. Hemmi var bara þjálfari HK í eitt tímabil en hann var ráðinn til Vals í vetur. Gunnar Heiðar er uppalinn Eyjamaður, fyrrverandi atvinnumaður og spilaði fjölda leikja fyrir íslenska landsliðið. Sem þjálfari hefur hann þjálfað KFS, Vestra og nú seinast Njarðvík þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri. Hann kom Njarðvík í umspilið í fyrra en lengi vel stefndi í að liðið myndi fara beint upp. Njarðvík komst þó ekki fram hjá Keflavík, sama niðurstaða og hjá HK. Spennandi verður að sjá hvort Gunnar Heiðar, sem er efnilegur þjálfari, geti flogið upp með HK-inga í sumar.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Voru einum leik frá Bestu deildinni
„HK með nýjan mann í brúnni sem náði stórkostlegum árangri með Njarðvík og kom þeim klúbbi frá botnbaráttu yfir í toppbaráttu í Lengjudeild er spennandi dæmi. Gunnar Heiðar hefur sannað sig sem einn mest spennandi þjálfari landsins síðustu 2-3 árin og var orðaður við allskonar flott störf síðasta haust, hann tók við HK og ég hef mikla trú á því að hann geti gert frábæra hluti með þetta lið og komið HK á betri stað."

„HK er með ungt, spennandi og sprækt lið, í bland við reynslu þá eru margir heimastrákar þarna sem fá mörg tækifæri og flott hlutverk í liðinu, voru einum leik frá Bestu deildinni í fyrra og ég veit að markmiðið verður ekkert minna fyrir þetta tímabil."

„Ég er einstaklega spenntur fyrir Þorvaldi Smára sem hefur verið orðaður við Val, Karli Ágústi sem er eldfljótur og leikinn kantmaður sem og Dominik Radic í þessu HK liði."


Lykilmenn: Þorsteinn Aron Antonsson og Dominik Radic
Þorsteinn Aron hefur tekið góð skref fram á við frá því hann kom í Kórinn frá Val fyrir tveimur tímabilum síðan. Hann var keyptur í HK fyrir síðasta tímabil eftir að hafa verið á láni þar við góðan orðstír. Þorsteinn er fyrrum unglingalandsliðsmaður sem fór meðal annars í lokakeppni EM með U19 landsliðinu. Hann verður í lykilhlutverki í vörn HK í sumar og á hinum enda vallarins á Dominik Radic að sjá um að skora mörkin. Radic lék undir stjórn Gunnars Heiðars hjá Njarðvík síðustu tvö tímabil. Með Njarðvík skoraði hann 26 mörk í 48 leikjum en hann verður að finna stöðugleika fyrir framan markið í sumar.

Gaman að fylgjast með: Þorvaldur Smári Jónsson
Þorvaldur Smári er miðjumaður sem fæddur er árið 2008. Hann fór í vetur á reynslu til enska úrvalsdeildarfélagsins Sunderland eftir að hafa komið við sögu í ellefu leikjum með HK í Lengjudeildinni í fyrrasumar. Núna að undanförnu hefur Hermann Hreiðarsson, fyrrum þjálfari HK, reynt að fá Þorvald Smára yfir í Val en HK hefur hingað til hafnað tilboðum Hlíðarendafélagsins. Þorvaldur Smári kemur til með að vera í hlutverki hjá HK í sumar ef hann verður áfram í herbúðum félagsins.

Komnir:
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR
Róbert Quental Árnason frá Leikni

Farnir:
Atli Arnarson hættur
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)



Fyrstu þrír leikir HK:
25. apríl, HK - Grótta (Kórinn)
1. maí, HK - Ægir (Kórinn)
9. maí, Vestri - HK (Kerecisvöllurinn)
banner