Fotbolti.net
21.05.18 - 18:24
Hjalti Jóhannsson

Óli Kristjáns: Við vildum vinna leikinn

Auglýsing
Ólafur Kristjánsson

Ólafur Kristjánsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Ólafur Kristjánsson þjálfari FH var að vonum ekki sáttur við eitt stig úr leiknum gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

„Nei, ég er ekki sáttur með eitt stig út úr þessum leik í dag. Við vildum vinna leikinn. Á fyrstu 15-20 mínútunum þá domineruðum við leikinn og fáum góð færi, og auðvitað vildi ég sjá eitthvað af þeim fara í netið.\"

Aðspurður um spilamennsku liðsins í leiknum sagði Ólafur

„Spilamennskan fyrstu 15-20 mínúturnar var mjög góð, eftir það hættum við að gera það sem við vorum að gera og ÍBV komst meira inn í leikinn. Síðan áttum við í brasi með sendingar og ákvarðanatökur á síðasta þriðjungi.\"

Deildin er orðin sterkari í ár og hafði Ólafur þetta um hana að segja:

„Það er skemmtilegt spirit í þessari deild og öll liðin leggja sig vel fram og menn gera sitt besta. Mikið talað um hvað eru margir stríðsmenn í deildinni, ég væri nú til í að ef að umræðan færi líka í hvað menn geta í fótbolta.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.