Fotbolti.net
21.08.26 - 20:50
Snæbjört Pálsdóttir

Guðni Eiríks: Ída gerði hluti fyrir okkur sem aðrir gera ekki

Auglýsing
Guðni Eiríksson var svekktur eftir annað heimtap FH í röð en segir nóg eftir af mótinu og að liðið þurfi að nýta stöðurnar betur.

Guðni Eiríksson var svekktur eftir annað heimtap FH í röð en segir nóg eftir af mótinu og að liðið þurfi að nýta stöðurnar betur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

FH tapaði 0-1 gegn Víkingi í Kaplakrika í 17. umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Þetta var annar heimaleikurinn í röð sem FH tapar og Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, var svekktur eftir leik.

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 Víkingur R.

„Bara svekktur að hafa tapað leiknum, klárlega. Svektur að tapa leik á heimavelli, tveir leikir í röð á heimavelli. Þetta er óvanalegt fyrir FH-liðið og við þurfum bara að kyngja því og halda áfram,“ sagði Guðni eftir leik.

„Mér fannst leikurinn ekki bera þess merki að við værum að fara að tapa þessum leik en mörk breyta leikjum.“

Guðni sagði FH hafa komið sér í nægar stöður til að vinna leikinn en það vantaði að koma boltanum í netið.

„Það skiptir engu máli þó maður sé ofan á í öllum þáttum leiksins ef maður er ekki ofan á í markaskorun. Ef þú skorar ekki mark þá vinnurðu ekki leik og svo fær maður á sig mark og þá tapar maður leik.“

„Það sem er vont er að við nýtum ekki þær fjölmörgu stöður sem við komum okkur í. Mér fannst við gera nóg til þess að vinna þennan leik en boltinn þarf að fara inn í netið og hann gerði það ekki.“

FH fékk vítaspyrnu í leiknum en Telma Ívars varði frá Ásdísi Karen. Guðni hrósaði markverði Víkings en sagði FH þurfa að gera betur í sínum færum.

„Telma er flottur markmaður og stóð sig vel. Hún var fyrir boltanum í þeim færum sem við fengum og þegar boltinn fór á rammann, þannig að vel gert hjá henni. En leikmenn FH-liðsins áttu að gera betur.“

Guðni gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir leikinn, meðal annars með komandi Evrópuverkefni í huga. Hann vildi þó ekki kenna róteringunni um úrslitin.

„Mér finnst FH-hópurinn það góður að allir leikmenn sem eru í hóp geta byrjað í þessu FH-liði og þeim er treyst fullkomlega fyrir verkinu.“

„Það getur truflað að vera með margar skiptingar en leikmenn eru að sama skapi vanir að vera í róteringu hjá FH-liðinu. Það hefði ekki átt að hafa nein áhrif.“

Hann taldi FH hafa verið með yfirhöndina í flestum þáttum leiksins.

„Mér fannst við vera meira með boltann, með fleiri heppnaðar sendingar, boltinn oftar inni í vítateig andstæðingsins og mér fannst við vinna návígin nokkuð vel. Ég held að við höfum verið ofan á í öllum þáttum leiksins nema markaskorun.“

Guðni vildi þó ekki taka neitt af Víkingi.

„Flott hjá þeim að koma hérna á Kaplakrikavöll, hafa ekki unnið leik lengi, taka þrjú stig, vinna okkur og verja markið sitt eins og þau gerðu.“

FH hefur misst Ídu Marín Hermannsdóttur úr hópnum og Guðni viðurkennir að fjarvera hennar breyti sóknarleik liðsins.

„Leikur FH-liðsins breytist aðeins með fjarveru Ídu. Ída er einstakur leikmaður og gerir hluti sem aðrir leikmenn í deildinni gera ekki.“

„Í fjarveru hennar þurfa aðrir leikmenn að stíga upp. Samspil í gegnum miðsvæðið verður aðeins öðruvísi og það þarf alls ekki að vera verra, en leikmenn þurfa að slípa sig saman og reyna eftir besta getu að fylla það skarð sem Ída skilur eftir sig.“

FH fer næst í Evrópuverkefni til Kýpurs þar sem það mætir liði Apollos en Guðni sagði lítið hægt að nálgast um andstæðinginn.

„Ég veit ekkert um þetta lið og það er ekkert hægt að nálgast neitt um þetta lið. Við rennum gjörsamlega blint í sjóinn.“

„Við spilum bara okkar leik og ætlum okkur að vera landi og þjóð til sóma. Við viljum sýna að íslensk kvennaknattspyrna sé á góðum stað.“

Guðni sagði tapið ekki breyta stöðunni í deildinni úrslitalega.

„Þetta er langt tímabil og það verða sviptingar. Það er enginn Íslandsmeistari í dag og það verður enginn Íslandsmeistari eftir næsta leik. Það er nóg eftir af þessu móti.“

„Það er vanvirðing við önnur lið í deildinni að halda að það séu bara FH og Breiðablik að labba í gegnum andstæðingana. Það er ekkert þannig. Við sjáum það bara í þessari umferð að bæði lið tapa leik.“

„Er ekki bara fegurð í því? Er ekki gaman að það sé eitthvað óvænt sem kryddar þetta?“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.