Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. nóvember 2021 19:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reguilon: Ég er dauður en ég er mjög ánægður
Reguilon var hetja Tottenham.
Reguilon var hetja Tottenham.
Mynd: EPA
Vinstri bakvörðurinn Sergio Reguilon var alveg búinn á því eftir 2-1 sigur Tottenham gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni.

Reguilon skorar ekki oft, en hann reyndist hetja síns liðs í dag þegar hann skoraði sigurmarkið í seinni hálfleiknum.

„Ég er ánægðasti maður í heimi; ég skoraði mitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni og okkur tókst að vinna. Núna höldum við áfram," sagði sá spænski.

„Ég er með hugarfar sóknarmanns þegar við sækjum. Það er það sem knattspyrnustjórinn vill."

„Ég er dauður en ég er líka mjög ánægður. Við gáfum allt í þetta, það er leiðin núna. Við vissum að við urðum að gera meira í seinni hálfleiknum."

Tottenham er núna komið upp fyrir Manchester United í sjöunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner