21.11.22 - 12:19
Elvar Geir Magnússon
Er kærasti dóttur þjálfara síns

Ferran Torres.

Mynd: Getty Images

Ferran Torres.

Mynd: Getty Images
Luis Enrique, landsliðsþjálfari Spánar, grínaðist með það á fréttamannafundi að það væri pressa á sér að velja Ferran Torres í byrjunarliðið. Torres, sem er fyrrum leikmaður Manchester City en spilar nú fyrir Barcelona, er kærasti dóttur hans.
„Það er pressa að velja Ferran Torres. Annars mun dóttir mín koma á eftir mér og hálshöggva mig!" sagði Enrique kíminn á fréttamannafundi.
Sjálfur segir Torres að samband sitt með dóttur Enrique skapi ekki eitthvað flækjustig.
„Þjálfarinn og ég getum greint á milli einkalífsins og fótboltans. Þetta hefur allt saman gengið vel hingað til," segir Torres.
Spánn mætir Kosta Ríka á miðvikudaginn en Þýskaland og Japan eru einnig í riðlinum.

Luis Enrique landsliðsþjálfari Spánar.

Mynd: EPA