Fotbolti.net
21.11.24 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eiður Orri til Keflavíkur (Staðfest)

Eiður Orri í leik með KFA

Eiður Orri í leik með KFA

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Lengjudeildin

Eiður Orri Ragnarsson er genginn til liðs við Keflavík en hann kemur frá KFA.

Eiður Orri skoraði 15 mörk á síðasta tímabili, 13 mörk í 2. deild og tvö mörk í fjórum leikjum í Fótbolti.net bikarnum.

Þessi tvítugi leikmaður hafði skorað níu mörk á ferlinum fyrir síðasta tímabil en hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2019. Hann er Vopnfirðingur en þekkir til í Reykjanesbæ þar sem hann var á mála hjá Njarðvík en var lánaður í Hött/Huginn áður en hann gekk til liðs við KFA.

Hann er nú mættur í Lengjudeildina þar sem hann mun taka slaginn með Keflavík næsta sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.