Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 22. janúar 2020 23:08
Aksentije Milisic
Einkunnir Man Utd og Burnley: Mee bestur - Fimm fá fimm hjá United
Leikmenn Burnley fagna í kvöld.
Leikmenn Burnley fagna í kvöld.
Mynd: Getty Images
Burnley vann góðan sigur á Manchester United í kvöld. Leikurinn fór fram á Old Trafford og það var Chris Wood sem kom gestunum yfir í fyrri hálfleik áður en Jay Rodriguez gulltryggði sigurinn með glæsilegu marki í þeim síðari.

SkySports gaf leikmönnum einkunnir fyrir frammistöður þeirra í kvöld.

Hjá United fá fimm leikmenn fimm í einkunn, þar á meðal Martial og Maguire en hæsta einkunn hjá byrjunarliðsleikmönnum United er einungis 6. Greenwood, sem kom inn á í hálfleik, var talinn skárstur hjá United en hann fékk 7.

Hjá gestunum fengu sex leikmenn 8 í einkunn og restin 7. Ben Mee var valinn maður leiksins.

Einkunnir Sky Sports:

Manchester United: De Gea (6), Wan-Bissaka (6), Jones (6), Maguire (5), Williams (6), Fred (6), Matic (5), James (5), Pereira (5), Mata (6), Martial (5)

Varamenn: Greenwood (7), Shaw (6)

Burnley: Pope (8), Tarkowski (8), Mee (8), Taylor (8), Lowton (7), Westwood (7), Cork (7), McNeil (7), Hendrick (7), Wood (8), Rodriguez (8)

Varamenn: Enginn

Maður leiksins: Ben Mee
Athugasemdir
banner
banner
banner