Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 22. janúar 2021 21:10
Victor Pálsson
Pogba: Þeir eru ekki með sömu gæði og Cavani
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, leikmaður Manchester United, segir að sóknarmenn liðsins séu einfaldlega ekki með sömu gæði og úrúgvæski framherjinn Edinson Cavani sem kom til Manchester í fyrra.

Cavani kom á frjálsri sölu eftir dvöl hjá Paris Saint-Germain þar sem hann raðaði inn mörkunum í mörg ár.

Cavani er öðruvísi tegund af framherja en hann reyndist mikilvægur og skoraði í 2-1 sigri á Fulham í vikunni.

„Allir vita það að Edi er topp framherji og það eru fáir eins og hann í heiminum. Við fengum tækifæri á að bæta honum við okkur," sagði Pogba sem skoraði sigurmark leiksins.

„Við erum með hæfileikaríka leikmenn, Anthony Martial, Marcus Rashford og jafnvel Mason Greenwood og þeir geta skotið fyrir utan teig og því líkt."

„Þeir eru þó ekki með það sama og reynslu Edi. Þeir eru ekki með sömu gæði og hann á vellinum."
Athugasemdir
banner
banner
banner