Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 22. janúar 2022 16:35
Brynjar Ingi Erluson
Fótbolti.net mótið B-deild: Selfoss í úrslit
Selfyssingar unnu stórsigur og spila til úrslita í B-deildinni
Selfyssingar unnu stórsigur og spila til úrslita í B-deildinni
Mynd: Hrefna Morthens
Selfyssingar eru komnir í úrslit B-deild Fótbolta.net mótsins eftir 4-0 sigur á Þrótti V. í riðli 1 í gær.

Selfoss hafði unnið einn leik og tapað einum fyrir leikinn í gær en liðið þurfti að treysta á það að Kórdrengir myndu tapa stigum gegn Njarðvík.

Selfoss gerði sitt og vann góðan fjögurra marka sigur á Þrótturum en á meðan töpuðu Kórdrengir fyrir Njarðvík, 3-1.

Njarðvík og Selfoss voru jöfn að stigum fyrir leikina í gær en Njarðvík með betri markatölu. Stórsigur Selfyssinga þýðir hins vegar það að liðið endar efst í riðlinum og vinnur hann með +4 í markatölu á meðan Njarðvík er með +3.

Njarðvík spilar um 3. sætið á meðan Kórdrengir spila um 5. sætið. Þá spila Þróttarar um 7, sætið.

Úrslit:

Njarðvík 3 - 1 Kórdrengir

Selfoss 4 - 0 Þróttur V.
Athugasemdir
banner
banner
banner