lau 22. janúar 2022 14:30
Brynjar Ingi Erluson
Milan í viðræðum við Tottenham um Tanganga
Japhet Tanganga
Japhet Tanganga
Mynd: Getty Images
Enski varnarmaðurinn Japhet Tanganga gæti gengið til liðs við Milan frá Tottenham á láni út þessa leiktíð. Félögin eiga nú í viðræðum samkvæmt frétt BBC.

Tanganga er 22 ára gamall miðvörður sem hefur spilað átján leiki í öllum keppnum með Tottenham á þessu tímabili.

Hann lék allan leikinn er Tottenham vann dramatískan sigur á Leicester á dögunum, 3-2, en gæti nú verið á förum frá félaginu.

BBC greinir frá viðræðum Tottenham við Milan. Ítalska félagið vill fá Tanganga á láni út tímabilið.

Tanganga gerði nýjan langtímasamning við Tottenham fyrir einu og hálfu ári síðan og gildir sá samningur til 2025.

Antonio Conte, stjóri Tottenham, gæti hins vegar hikað með það að senda Tanganga til Milan þar sem Cristian Romero er enn að jafna sig af meiðslum.
Athugasemdir
banner
banner
banner