Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. maí 2022 19:20
Brynjar Ingi Erluson
Thiago missir líklega af úrslitaleiknum
Thiago fór meiddur af velli
Thiago fór meiddur af velli
Mynd: Getty Images
Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara mun að öllum líkindum missa af úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að hann meiddist í 3-1 sigri Liverpool á Wolves í dag.

Thiago lagði upp jöfnunarmark Sadio Mané áður en hann meiddist er hann reyndi sendingu á Trent Alexander-Arnold.

Spánverjinn fór af velli í hálfleik og er Jürgen Klopp, stjóri liðsins, ekki bjartsýnn á að hann verði með gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu.

„Ég held að hann missi af úrslitaleiknum en ég er ekki alveg viss með það. Hann haltrar, þannig það veit ekki á gott," sagði Klopp eftir leik.

Thiago er með bestu mönnum Liverpool og hefur spilað frábærlega á miðjunni á þessu tímabili en það yrði mikil blóðtaka fyrir liðið ef hann nær ekki úrslitaleiknum.
Athugasemdir
banner
banner