Fotbolti.net
22.09.18 - 17:56
Þórir Karlsson

Bjarni Jó: Fullt af þjálfarastöðum lausum á Íslandi

Auglýsing
Bjarni Jóhannsson þjálfari Vestra

Bjarni Jóhannsson þjálfari Vestra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson þjálfari Vestra átti við blendnar tilfinningar að stríða eftir sigur hans manna á Kára í dag.
“Höttur gaf okkur klárlega bússtí hálfleik með því að vera yfir gegn Aftureldingu og eftir að við höfðum svona ekki náð okkur almennilega á stryk í fyrri hálfleik, en það var nóg til að hleypa smá lífi í okkur og skora tvö mörk fljótlega og lifa í voninni, það var það eina sem við gátum gert, það var að vinna þennan leik og það gerðum við.”
En Vestri þurfti að vinna leikinn í dag og vona að Grótta eða Afturelding myndi misstíga sig til að komast upp í Inkasso-deildina.


Er Bjarni var spurður út í hvort hann yrði áfram með liðið hafði hann eftirfarandi að segja:
“Þú verður að spyrja Samma að þessu, hann ræður öllu þarna.”

Eftir smá umræðu um það sagði Bjarni:
“Fullt af þjálfarastöðum lausum á Íslandi maður."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.