Fotbolti.net
22.09.18 - 20:51
Brynjar Ingi Erluson

Jói Kalli: Við eigum fyllilega skilið að vinna þessa deild

Auglýsing
Jóhannes Karl Guðjónsson

Jóhannes Karl Guðjónsson

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA, var í skýjunum eftir að hafa unnið Inkasso-deildina í dag.
Liðið gerði 1-1 jafntefli við Þrótt og það reyndist nóg til þess að vinna deildina en HK tapaði á móti Haukum á Ásvöllum.

Jóhannes fór yfir leikinn í dag, sumarið og framtíðina.

„Við áttum að vinna leikinn, sköpuðum okkur fullt af færum í fyrri hálfleik. Komumst nokkrum sinnum einir í gegn þar sem Arnar Darri ver skemmtilega. Þetta var aldrei jafntefli að mínu mati, áttum að ná að skora en engu að síður vorum við mjög öflugir og ég er sáttur með leikinn í heildina," sagði Jóhannes Karl.

„Það er þannig að kannski ég sem þjálfari horfi á hvað við gátum gert betur. Maður er alltaf að leita leiða til að bæta sig, leik fyrir leik, en sumarið í heildina þá byrjuðum við mjög vel og fengum lítið af mörkum á okkur og varnarleikurinn var mjög góður í heild sinni eiginlega í allt sumar."

„Við eigum fyllilega skilið að vinna þessa deild og mér finnst við vera besta liðið,"
sagði hann ennfremur.

Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan en hann ræðir starfið í sumar og framhaldið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.