Sindri Björnsson gæti verið á leið heim í Leikni en hann hefur æft með liðinu að undanförnu.
Sindri spilaði með Val hálft tímabilið 2016 og gekk í kjölfarið í raðir félagsins. Seinni hluta tímabilsins 2019 lék hann með ÍBV og fyrir tímabilið 2020 gekk hann í raðir Grindavíkur.
Sindri spilaði með Val hálft tímabilið 2016 og gekk í kjölfarið í raðir félagsins. Seinni hluta tímabilsins 2019 lék hann með ÍBV og fyrir tímabilið 2020 gekk hann í raðir Grindavíkur.
Sindri lék 38 deildarleiki með Grindavík en tókst ekki að skora í þeim, samningur hans við félagið rann út eftir síðasta tímabil.
Sindri er 26 ára miðjumaður sem uppalinn er í Leikni og lék með uppeldisfélaginu gegn ÍR í Hlynsleiknum um helgina.
Á sínum tíma lék hann 21 leik fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir