Kristinn Jónsson, vinstri bakvörður KR, hefur verið valinn leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max-deildar karla í kosningu hér á Fótbolta.net.
Það er Origo sem verðlaunar leikmann hvers þriðjungs í Pepsi Max-deildum karla og kvenna í sumar. Lesendur Fótbolta.net fengu að velja milli fjögurra tilnefndra leikmanna og Kristinn fékk 40% atkvæða.
Hann fékk í verðlaun Sony bluetooth heyrnartól 1000XM3 með noise cancel frá Origo.
Valið er í samvinnu við Innkastið en sérfræðingar þáttarins tilnefndu fjóra leikmenn. Kristinn Jónsson (KR), Atli Arnarson (HK), Óskar Örn Hauksson (KR) og Guðmundur Andri Tryggvason (Víkingur R.) voru tilnefndir.
Þessir fjórir eru tilnefndir sem Sony leikmaður annars þriðjungs Pepsi Max. Þú sérð um að kjósa þann besta í umferðum 8-15! #fotboltinet #Innkastið
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) August 7, 2019
Sjá einnig:
Tryggvi Hrafn bestur í umferðum 1-7
Athugasemdir