Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. janúar 2020 19:40
Magnús Már Einarsson
Arteta: Ceballos þarf að berjast fyrir sæti sínu
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Dani Ceballos þurfi að komast aftur í form og berjast fyrir sæti sínu í liðinu.

Ceballos er á láni hjá Arsenal frá Real Madrid en hann er sagður vilja fara annað á lán til að fá meiri spiltíma fyrir EM í sumar.

Ceballos er að stíga upp úr meiðslum og Arteta vill að hann berjist fyrir sæti sínu.

„Þegar ég kom til félagsins var hann í endurhæfingu í Madrid í mánuð svo ég hef ekki séð mikið til hans. Hann hefur bara æft með okkur í viku eða tíu daga. Það er of snemmt til að dæma hvað ég get og get ekki gert með hann," sagði Arteta.

„Ég heyri alls konar hluti um hann en ég get ekki tjáð mig um þá. Hann þarf að komast aftur í form og berjast fyrir sæti sínu. Eftir það mun ég velja liðið eins og ég tel að það sé best."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner