Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 24. janúar 2021 11:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Derby hafa ekki fengið greitt fyrir desember
Mynd: Getty Images
Wayne Rooney tók við ansi erfiðu búi hjá Derby County og er liðið búið að sigra síðustu tvo leiki undir hans stjórn.

Staðan er þó erfið hjá Derby og segist Rooney vilja ólmur fá nýja leikmenn til að styrkja hópinn. Hann getur þó ekki fengið þá vegna þess að fjárfestahópur frá Abú Dabí er við það að ganga frá kaupum á félaginu.

Eigendaskiptin hafa verið yfirvofandi í langan tíma og er Rooney þreyttur á ástandinu.

„Við þurfum svör á næstu dögum. Við þurfum nýja leikmenn fyrir gluggalok en ég get ekki verið að fá nýja leikmenn inn þegar þeir sem eru hjá félaginu eiga enn eftir að fá greitt fyrir desember," sagði Rooney eftir sigur gegn QPR um helgina.

„Ég mun spjalla við Stephen Pearce og Mel Morris til að reka á eftir þessu. Við höfum ekki mikinn tíma."
Athugasemdir
banner
banner
banner