Fotbolti.net
24.09.23 - 17:14
Brynjar Ingi Erluson

Óeirðir í Amsterdam

Stuðningsmenn hafa unnið mikil skemmdarverk á leikvanginum

Stuðningsmenn hafa unnið mikil skemmdarverk á leikvanginum

Canon

Mynd: Getty Images

Leikur Ajax og Feyenoord var flautaður af á 55. mínútu í Amsterdam vegna óeirða, en stuðningsmenn Ajax hafa unnið mikil skemmdarverk á eigin leikvangi.
Feyenoord, sem er ríkjandi meistari, var að leiða með þremur mörkum gegn engu í hálfleik.

Stuðningsmenn Ajax sætta sig ekki við slíkar tölur eftir að hafa verið með mikla yfirburði í deildinni síðasta áratuginn.

Þeir unnu mikil skemmdarverk á leikvangi félagsins til að mótmæla þessum slaka árangri og í kjölfarið brutust út miklar óeirðir sem varð til þess að leikurinn var flautaður af á 55. mínútu.

Íslenski landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson var á bekknum hjá Ajax, en hafði ekki komið við sögu þegar leikurinn var stöðvaður.

Ajax hefur aðeins unnið einn deildarleik í fyrstu fimm leikjunum á tímabilinu en liðið er með 4 stig í 14. sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.