Það voru sex mörk skoruð í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, leik Sheffield United og Manchester United á Bramall Lane.
Sheffield United komst í 2-0, en United sýndi loksins eitthvað þegar um 20 mínútur voru eftir. Brandon Williams skoraði og í kjölfarið komu mörk frá Mason Greenwood og Marcus Rashford.
Gestirnir náðu hins vegar ekki að landa sigri því Oli McBurnie jafnaði í uppbótartíma.
Morgunblaðið hefur birt myndband af mörkunum og má sjá þau hér að neðan.
Sheffield Utd 3 - 3 Manchester Utd
1-0 John Fleck ('19 )
2-0 Lys Mousset ('52 )
2-1 Brandon Williams ('72 )
2-2 Mason Greenwood ('77 )
2-3 Marcus Rashford ('79 )
3-3 Oliver McBurnie ('90 )
Athugasemdir