fim 24. nóvember 2022 05:55
Elvar Geir Magnússon
HM í dag - Ronaldo og Brassarnir
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Neymar.
Neymar.
Mynd: Getty Images
Þvílíkur HM dagur sem er framundan. Fyrstu umferð riðlakeppninnar lýkur, Cristiano Ronaldo mætir til leiks og líka eitt sigurstranglegasta lið keppninnar Brasilía.

HM: G-riðill
10:00 Sviss - Kamerún
19:00 Brasilía - Serbía

Sjá einnig:
G-riðillinn: Neymar með meiri hjálp en nokkru sinni áður

HM: H-riðill
13:00 Úrúgvæ - Suður Kórea
16:00 Portúgal - Gana

Sjá einnig:
H-riðilinn: Mesti dauðariðillinn af þeim öllum?

Velkominn Ronaldo
Cristiano Ronaldo, maðurinn sem er til umræðu á öllum kaffistofum, hefur leik með portúgalska liðinu klukkan 16. Þrátt fyrir að vera þessi mikla fótboltaþjóð hefur Portúgal aðeins tvívegis komist í undanúrslit á HM; 1966 og 2006. Í Rússlandi fyrir fjórum árum féll Portúgal út í 16-liða úrslitum gegn Úrúgvæ en liðin eru einmitt saman í riðli i þessari keppni.

Líklegt byrjunarlið Portúgal: Costa; Cancelo, Pepe, Dias, Guerreiro; Neves, Carvalho, Fernandes; B. Silva, Ronaldo, Leao

Mikil pressa á brasilíska liðinu
Brasilía er eina þjóðin sem hefur tekið þátt í öllum heimsmeistaramótunum en það eru 20 ár síðan liðið vann sjálfan titilinn í fimmta sinn. Það er mikil pressa á Tite þjálfara Brasilíu og hans hæfileikaríka leikmannahópi.

Líklegt byrjunarlið Brasilíu: Alisson; Danilo, Thiago Silva, Marquinhos, Sandro; Casemiro, Paqueta; Raphinha, Neymar, Vinicius Jr; Richarlison
HM hringborðið - Yfirferð með Davíð Snorra: Stór lið strax undir pressu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner