Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 25. ágúst 2019 18:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Völsungur skoraði sigurmarkið 10 gegn 11
Völsungur fékk rautt en vann samt leikinn.
Völsungur fékk rautt en vann samt leikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Völsungur 1 - 0 KFG
1-0 Sverrir Páll Hjaltested ('90)
Rautt spjald: Kaelon Fox, Völsungur ('59)

Síðasti leikur dagsins í 2. deild karla var að klárast. Völsungur og KFG áttust við á Húsavík.

Heimamenn voru sterkari í leiknum, en þeir urðu fyrir áfalli í byrjun seinni hálfleiks þegar varnarmaðurinn Kaelon Fox fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Völsungur lét það hins vegar ekki mikið á sig fá og skoraði sigurmarkið í leiknum þegar lítið var eftir. Það gerði Sverrir Páll Hjaltested og var mikið fagnað á pöllunum.

Mikilvægur sigur hjá Völsungi eftir dapurt gengi að undanförnu. Völsungur er áfram í níunda sæti, en núna með 24 stig. KFG er sex stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

Sjá einnig:
2. deild: Pétur hetja Vestra - Selfoss enn á lífi í toppbaráttunni
2. deild: Þrenna Andra kom í veg fyrir að Dalvík/Reynir blandaði sér í toppbaráttuna
Athugasemdir
banner
banner
banner