Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. september 2021 13:09
Benjamín Þórðarson
Byrjunarlið Keflavíkur og ÍA: Óbreytt hjá báðum liðum
Allt undir í Keflavík!
Gibbs er að sjáflsögðu á sínum stað!
Gibbs er að sjáflsögðu á sínum stað!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það mun mikið mæða á Ísak á miðjunni hjá ÍA
Það mun mikið mæða á Ísak á miðjunni hjá ÍA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna kl 14:00 hefst leikur Keflavíkur og ÍA í síðustu umferð Pepsi Max deildarinnar þetta sumarið og það er allt undir. Bæði lið eru í fallbaráttu og geta bæði fallið í dag.

Báðir þjálfarar sjá ekki til neina ásætðu til þess að gera breytingar á sínum liðum og stilla upp óbreyttum liðum frá síðustu umferð. Þar unnu bæði lið góða sigra en Keflavík vann 0-1 sigur á Leikni í Breiðholtinu og og Skagamenn burstuðu Fylki á Akranesi 5-0. Bæði lið vilja sigur og tryggja sitt sæti en allt annað en sigur fellir Skagamenn.

Byrjunarlið Keflavíkur
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f)
7. Davíð Snær Jóhannsson
11. Helgi Þór Jónsson
14. Dagur Ingi Valsson
16. Sindri Þór Guðmundsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
25. Frans Elvarsson
30. Marley Blair

Byrjunarlið ÍA
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Óttar Bjarni Guðmundsson (f)
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Wout Droste
7. Sindri Snær Magnússon
9. Viktor Jónsson
10. Steinar Þorsteinsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Ísak Snær Þorvaldsson
22. Hákon Ingi Jónsson
44. Alex Davey
Athugasemdir
banner