Líka hægt að halda miðunum 
    
                                                                
                Miðakaupendur geta óskað eftir endurgreiðslu á miðum á leik Íslands og Rúmeníu í umspili undankeppni EM sem átti að fara fram í dag 26. mars, en frestur til þess er til og með mánudagsins 6. apríl.
                
                
                                    Áætlað er að leikur Íslands og Rúmeníu í umspili fyrir EM A landsliða karla fari fram á Laugardalsvelli fimmtudaginn 4. júní nk.
Miðakaupendur sem vilja halda sínum miðum þurfa ekki að gera neitt og halda einfaldlega sínum upprunalegu miðum/sætum.
Miðakaupendur sem vilja fá miðana endurgreidda geta haft samband við KSÍ í tölvupósti á [email protected].
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
                                                                        
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                
