Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 26. mars 2023 21:36
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo með ellefu mörk í ellefu leikjum
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo elskar að skora gegn Lúxemborg og kom því lítið á óvart að hann hafi skorað tvö mörk í 6-0 sigrinum í kvöld.

Ronaldo skoraði tvö mörk á tuttugu mínútum í fyrri hálfleik gegn Lúxemborg og gerði hann því fjögur mörk í þessu landsliðsverkefni með Portúgölum.

Sóknarmaðurinn skoraði fyrra markið af stuttu færi fyrir framan opið mark en síðara var afar lagleg afgreiðsla.

Ronaldo er með fullkomna tölfræði gegn Lúxemborg en hann hefur skorað ellefu mörk í ellefu leikjum gegn þjóðinni og er þetta í fyrsta sinn sem hann kemst í tveggja stafa tölu gegn annarri þjóð.

Framherjinn er með 122 mörk í 198 landsleikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner