Það er nóg um að vera í fjórum efstu deildum Íslandsmóts karla í dag þar sem tveir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport.
                
                
                                    Í Pepsi Max-deildinni á KA heimaleik gegn KR áður en Breiðablik tekur á móti ÍA.
KR getur endurheimt toppsætið af Val með sigri á Akureyri. Leikurinn verður þó ekki sýndur í sjónvarpi, heldur verður viðureign Fram og Þór í toppbaráttu Lengjudeildarinnar sýnd.
Blikar eru búnir að tapa þremur leikjum í röð og þurfa sigur gegn Skagamönnum í kvöld. Bæði lið eru um miðja deild, Breiðablik með 11 stig og ÍA 10 eftir átta umferðir.
Tveir fyrstu leikir dagsins í Lengjudeildinni verða sýndir beint á YouTube. Magni tekur þar á móti Grindavík á meðan Keflavík mætir Vestra.
Það er einnig nóg um að vera í 2. og 3. deild og er hægt að sjá stöðutöflurnar hér fyrir neðan.
Pepsi Max-deild karla
16:00 KA-KR (Greifavöllurinn)
19:15 Breiðablik-ÍA (Stöð 2 Sport - Kópavogsvöllur)
Lengjudeild karla
14:00 Magni-Grindavík (Grenivíkurvöllur)
14:00 Keflavík-Vestri (Nettóvöllurinn)
16:00 Fram-Þór (Stöð 2 Sport - Framvöllur)
16:00 Víkingur Ó.-Leiknir F. (Ólafsvíkurvöllur)
2. deild karla
14:00 Fjarðabyggð-Kári (Eskjuvöllur)
14:00 Dalvík/Reynir-Njarðvík (Dalvíkurvöllur)
14:00 Víðir-Haukar (Nesfisk-völlurinn)
14:00 KF-Selfoss (Ólafsfjarðarvöllur)
16:00 ÍR-Völsungur (Hertz völlurinn)
3. deild karla
14:00 Höttur/Huginn-Álftanes (Vilhjálmsvöllur)
14:00 Einherji-Ægir (Vopnafjarðarvöllur)
14:00 Augnablik-Tindastóll (Kópavogsvöllur)
14:00 Reynir S.-Sindri (BLUE-völlurinn)
				Stöðutaflan
								 
 
								
			
		 
 
								
			| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
				Stöðutaflan
								 
 
								
			
		 
 
								
			| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
				Stöðutaflan
								 
 
								
			
		 
 
								
			| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
				Stöðutaflan
								 
 
								
			
		 
 
								
			| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |
Athugasemdir
                                                                
                                                        
 
         
         
     
         
        
 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                            
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                    
                        
        
         
                        
        
         
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        
                        
        
         
                    
        
         
                 
                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                
                        
        
        
