„Við viljum nýta pressumómentin betur, taka það góða úr síðasta leik með í þennan leik og sækja á þeirra veikleika," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir um leik Íslands og Svíþjóðar á morgun.
Þessi lið eru að berjast um efsta sætið í sínum riðli í undankeppni EM en jafntefli varð niðurstaðan á Laugardalsvelli í síðasta mánuði.
Það verður því allt undir í Svíþjóð á morgun en efsta liðið fer beint á EM á meðan liðið í 2. sæti fer líklega í umspil.

„Þetta verður hörkuleikur. Þetta eru lið með líka styrkleika. Við þurfum að loka á þeirra styrkleika og nýta þeirra veikleika. Vonandi náum við frábærum úrslitum,"
Karolína Lea átti góðan leik gegn Svíþjóð á Laugardalsvelli þar sem hún fékk tækifæri í byrjunarliðinu.
„Það var þvílíkt mikilvægt að fá traustið. Ég þakka vel fyrir það," sagði Karolína í viðtali á Twitter síðu KSÍ.
„Ég vona að ég fái að spila í þessu verkefni en það er mikil samkeppni í liðinu og það heldur manni á tánum."
Athugasemdir