Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. október 2021 16:30
Elvar Geir Magnússon
Verratti missir af mikilvægum leikjum
Mynd: EPA
Marco Verratti, miðjumaðurinn magnaði, verður frá í mánuð vegna meiðsla í mjöðm. Hann missir því af landsleik Ítalíu gegn Sviss í undankeppni HM og leik Paris Saint-Germain gegn Manchester City í Meistaradeildinni.

Verratti haltraði af velli í markalausum leik PSG gegn Marseille á Stade Velodrome vellinum á sunnudaginn.

Leikur Ítalíu og Sviss þann 12. nóvember er gríðarlega mikilvægur en liðin eru jöfn að stigum á toppi C-riðils þegar tveir leikur eru eftir. Aðeins sigurliðið í riðlinum fær beinan þátttökurétt á HM 2022.

Ítalía mætir svo Norður-Írlandi þremur dögum seinna í lokaumferð riðilsins.

Þá er búist við því að Verratti missi af leiknum gegn Manchester City sem verður 24. nóvmber.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner