Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. nóvember 2021 23:00
Victor Pálsson
Wilshere útilokar ekki að spila aftur fyrir Arsenal
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal, útilokar það ekki að hann muni spila aftur fyrir aðallið félagsins.

Wilshere hefur verið að æfa með Arsenal undanfarnar vikur en hann leitar sér að nýju félagi eftir að hafa yfirgefið Bournemouth sem leikur í næst efstu deild í dag.

Wilshere var áður mjög mikilvægur hluti af liði Arsenal en meiðsli hafa sett stórt strik í hans reikning á ferlinum. Hann er einnig fyrrum landsliðsmaður Englands.

Wilshere segist ekki hafa leikið fyrir varalið Arsenal ennþá en viðurkennir að það sé enn möguleiki.

Blaðamaður spurði leikmanninn svo út í það hvort hann gæti spilað fyrir aðallið Arsenal á ný einn daginn.

„Ég veit það ekki, ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hef ég ekki hugmynd," svaraði Wilshere og útilokar því ekki þann möguleika.

Það væri frábært fyrir fótboltan ef Wilshere kemst aftur af stað en hann er eins og margir vita frábær knattspyrnumaður á sínum degi.
Athugasemdir
banner
banner
banner