Fotbolti.net
26.11.24 - 23:30
Brynjar Ingi Erluson

Guardiola með klórför á hausnum og sár á nefinu - „Vil skaða sjálfan mig“

Pep fór illa með sig í leiknum

Pep fór illa með sig í leiknum

Canon

Mynd: X

Spænski stjórinn Pep Guardiola er oft líflegur á hliðarlínunni hjá Manchester City og sést hann oft grípa um höfuð sitt í leikjum, en hann tók þetta á næsta stig í 3-3 jafnteflinu gegn Feyenoord í kvöld.
Guardiola mætti í viðtöl eftir hrun Man City á Etihad í kvöld og var hann þá með sár á nefinu ásamt því að vera með bersýnileg klórför á hausnum.

Spánverjinn var spurður út í þessi meiðsli hans en svar hans var heldur einfalt.

„Ég renndi nöglinni eftir nefinu og fékk sár. Ég vil skaða sjálfan mig,“ sagði Guardiola.

Man City hefur tapað fimm og gert eitt jafntefli í síðustu sex leikjum. Liðið er átta stigum frá toppnum í ensku úrvalsdeildinni og er sem stendur í 15. sæti Meistaradeildarinnar með aðeins átta stig.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.