Dele Alli hefur verið að æfa með Everton í þeirri von um að fá nýjan samning hjá félaginu, en það er orðið afar ólíklegt eftir að hann meiddist aftur.
Meiðsli hafa komið í veg fyrir að Dele spili í fótbolta í meira en ár núna.
Meiðsli hafa komið í veg fyrir að Dele spili í fótbolta í meira en ár núna.
Hann hefur verið orðaður við Lille í Frakklandi og Genoa á Ítalíu en hann er samningslaus eftir að samningur hans við Everton rann út síðasta sumar.
Dele hafði vonast til að fá nýjan samning hjá Everton en það þykir ólíklegt eftir nýjustu tíðindi af honum. Hann meiddist aftur og verður eitthvað frá.
Dele Alli var á sínum tíma mest spennandi leikmaður Englendinga en ferill hans hefur verið á mikilli niðurleið síðustu árin. Vandræði utan vallar hafa haft áhrif á hann.
Athugasemdir