Christian Eriksen hefur staðist læknisskoðun hjá Inter Milan.
Hann mun því að öllum líkindum verða tilkynntur sem leikmaður liðsins í kvöld eða, það sem líklegra er, á morgun.
Inter er talið greiða 17,5 milljónir punda fyrir danska miðjumanninn.
Hann mun því að öllum líkindum verða tilkynntur sem leikmaður liðsins í kvöld eða, það sem líklegra er, á morgun.
Inter er talið greiða 17,5 milljónir punda fyrir danska miðjumanninn.
Eriksen er talinn skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning sem færir honum 130 þúsund pund í vikulaun. Eriksen gekk í raðir Tottenham árið 2013.
Steven Bergwijn er þá á leiðinni til Tottenham frá PSV og Krzysztof Piatek er orðaður við félagið frá Milan.
Christian Eriksen passes Inter Milan medical ahead of £17.5m move https://t.co/e3K8h9GVsS pic.twitter.com/z1koDHlMxs
— SportsGridUK (@Sportsgriduk) January 27, 2020
Athugasemdir