Dennis Bergkamp fyrrum leikmaður Arsenal er sagður hafa ýtt á Patrick Vieira stjóra Crystal Palace að fá Donny van de Beek á láni frá Manchester United.
Bergkamp og Vieira voru samherjar hjá Arsenal í níu ár. Þeir voru meðal annars hluti af liðinu sem fór ósigrað í gegnum ensku úrvalsdeildina tímabilið 2003/04.
Estelle Bergkamp er eiginkona van de Beek en hún er dóttir Dennis Bergkamp.
Van de Beek hefur aðeins spilað 68 mínútur á þessari leiktíð en Man Utd er sagt opið fyrir því að senda hann á lán ef liðið sem tekur hann borgar launin hans.
Dennis Bergkamp er sagður hafa spjallað við gamla liðsfélaga sinn og reynt að sannfæra hann um að næla í miðjumanninn.
Athugasemdir