Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fös 27. janúar 2023 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Segja Martinelli vera búinn að skrifa undir til 2027
Mynd: EPA

The Athletic greinir frá því að Gabriel Martinelli sé búinn að skrifa undir nýjan samning við Arsenal og að fregnirnar verði staðfestar á næstu dögum.


Samkvæmt frétt Athletic skrifar brasilíski kantmaðurinn undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið sem gildir til sumarsins 2027.

Núverandi samningur Martinelli rennur út 2024 og eru mörg stórlið sem hafa áhuga á að fá þennan bráðefnilega leikmann til sín en hann ætlar að vera áfram hjá Arsenal.

Martinelli er 21 árs gamall og lykilmaður í toppliði Arsenal. Hann er kominn með sjö mörk og tvær stoðsendingar í nítján úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu. Til samanburðar skoraði hann sex og lagði upp sex í 29 leikjum á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner