Kristian Nökkvi Hlynsson og Kristófer Ingi Kristinsson voru í byrjunarliðum í hollensku B-deildinni í dag.
Kristian lék allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn Helmond en bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar. Kristian er partur af varaliði Ajax sem er með 24 stig eftir 22 umferðir.
Kristófer Ingi var í liði Venlo sem gerði markalaust jafntefli við Den Haag. Venlo er í góðri stöðu í baráttunni um umspilssæti um sæti í efstu deild, með 36 stig.
Helmond 1 - 1 Jong Ajax
Venlo 0 - 0 Den Haag
Þá var Nökkvi Þeyr Þórisson í fremstu víglínu í 3-2 sigri Beerschot gegn varaliði Genk í belgísku B-deildinni.
Nökkvi Þeyr hefur ekki skorað í fjórum leikjum í röð eftir að hafa verið funheitur í nóvember.
Beerschot er á toppi deildarinnar sem stendur, með 38 stig eftir 20 umferðir.
Beerschot 3 - 2 Genk U23