27.04.21 - 20:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Benzema orðinn sá fjórði markahæsti - Ekkert úr vítum


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Karim Benzema skoraði í dag sitt 71. mark í Meistaradeildinni á ferlinum. Hann jafnar þar með við Raul í 4. sætinu yfir þá markahæstu í sögunni.
Einungis Cristiano Ronaldo (134), Lionel Messi (120) og Robert Lewandowski (73) hafa skorað fleiri mörk.
Einungis Cristiano Ronaldo (134), Lionel Messi (120) og Robert Lewandowski (73) hafa skorað fleiri mörk.
Benzema skoraði með föstu skoti eftir um hálftíma leik gegn Chelsea í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna. Markið var jöfnunarmark leiksins og urðu lokatölur 1-1.
Það sem er merkilegt við þennan markafjölda Benzema er að hann hefur skorað þau öll úr opnum leik, ekkert úr aukaspyrnum eða vítaspyrnum.
Það sem er merkilegt við þennan markafjölda Benzema er að hann hefur skorað þau öll úr opnum leik, ekkert úr aukaspyrnum eða vítaspyrnum.
