Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 27. apríl 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Keylor Navas framlengir við PSG
Keylor Navas
Keylor Navas
Mynd: Getty Images
Keylor Navas, markvörður Paris Saint-Germain í Frakklandi, framlengdi í gær samning sinn við félagið til 2024.

Navas, sem er 34 ára gamall, hefur verið einn besti maður PSG á þessari leiktíð og verið afar stabíll frá því hann kom frá spænska stórliðinu Real Madrid.

Hann var til að mynda valinn leikmaður mánaðarins í frönsku deildinni í þessum mánuði og hefur verið verðlaunaður fyrir frammistöðuna.

Navas hefur framlengt samning sinn við PSG til ársins 2024 en það má gera ráð fyrir fleiri tilkynningum frá franska félaginu á næstu vikum.

Neymar og Kylian Mbappe eru báðir í viðræðum við félagið en það er talið afar líklegt að brasilíski sóknarmaðurinn sé næstur í röðinni á eftir Navas.
Athugasemdir
banner
banner
banner