Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 27. október 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Man City fær einn efnilegasta leikmann Everton
Man City er að næla sér í efnilegan leikmann
Man City er að næla sér í efnilegan leikmann
Mynd: EPA
Englandsmeistarar Manchester City hafa nælt sér í ungstirnið Emilio Lawrence frá Everton en það er Fabrizio Romano sem segir frá þessu á Twitter.

Lawrence er 17 ára gamall sóknartengiliður og kemur frá Skotlandi en hann hefur síðustu ár spilað fyrir unglingalið Everton.

Á síðasta tímabili spilaði hann með U23 ára liði Everton og var með efnilegustu leikmönnum liðsins.

Hann er nú að ganga í raðir Manchester City en allt er frágengið samkvæmt Fabrizio Romano.

Lawrence stóðst læknisskoðun á dögunum og skrifaði í kjölfarið undir langtímasamning við Man City.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner