27.10.26 - 19:27
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Átta mörk og tvö klúðruð víti í skemmtilegum leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sassuolo 2 - 6 Lazio
0-1 Kenneth Taylor ('2 )
1-1 Kristian Thorstvedt ('7 )
1-2 Gustav Isaksen ('13 )
1-3 Romano Floriani ('16 )
2-3 Sebastiano Esposito ('43 )
2-4 Mattia Zaccagni ('45+1 )
2-4 Mattia Zaccagni ('50 , Misnotað víti)
2-5 Tijjani Noslin ('55 )
2-5 Davide Frattesi ('61 , Misnotað víti)
2-6 Tijjani Noslin ('65 )
Rautt spjald: Kristian Thorstvedt, Sassuolo ('31)

Ótrúlegum fótboltaleik var að ljúka í efstu deild ítalska boltans þegar Sassuolo tók á móti spútnik liði Lazio.
Gestirnir voru snöggir að taka forystuna þegar Kenneth Taylor skoraði eftir tveggja mínútna leik en Kristian Thorstvedt jafnaði fimm mínútum síðar.
Frábær sóknarleikur Lazio og slakur varnarleikur Sassuolo urðu til þess að gestirnir frá höfuðborginni bættu tveimur mörkum við leikinn með stuttu millibili. Gustav Isaksen og Romano Floriani Mussolini skoruðu á 13. og 16. mínútu svo staðan var orðin 1-3 fyrir Lazio.
Bæði lið lögðu mikið upp úr sóknarleiknum en á 31. mínútu fékk markaskorari Sassuolo að líta beint rautt spjald fyrir ljótt brot. Hann traðkaði illa á Mattia Zaccagni og var dómarinn ekki í neinum vafa með að veifa rauða spjaldinu.
Tíu heimamenn gáfust ekki upp og minnkaði Sebastiano Esposito muninn á 43. mínútu, en Zaccagni refsaði með marki í uppbótartíma. Staðan var því 2-4 í hálfleik.
Stefano Turati gat lítið gert í mörkunum sem hann fékk á sig en í síðari hálfleik varði hann tvær vítaspyrnur. Fyrst varði hann frá Zaccagni áður en hann fékk fimmta markið á sig frá Tijjani Noslin. Turati varði svo víti frá Davide Frattesi áður en Noslin setti sjötta og síðasta mark Lazio í stórsigrinum.
Bæði lið fengu færi til að bæta marki við leikinn en tókst ekki, svo lokatölur urðu 2-6 en sigurinn hefði hæglega getað orðið stærri.
Ótrúleg byrjun Lazio undir stjórn Gennaro Gattuso heldur áfram. Liðið vermir toppsæti Serie A deildarinnar, með 25 stig eftir 9 umferðir.
Sassuolo situr eftir í neðri hlutanum með 8 stig.
Albert Guðmundsson leikur fyrir Lazio en var ekki með vegna meiðsla.