Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. nóvember 2021 16:16
Aksentije Milisic
Bose bikarinn: Stjarnan og Víkingur á sigurbraut
Kristall skoraði í dag.
Kristall skoraði í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Það voru leikir spilaðir í Bose bikarnum í dag en flautað var til leiks í báðum leikjum klukkan 13:00.

Á Samsungvellinum mættust Stjarnan og KR í A-riðli. Leiknum lauk með 2-1 sigri Stjörnunnar en sigurmarkið kom undir lok leiks.

Þorsteinn Már Ragnarsson kom Stjörnunni yfir en Stefan Alexander Ljubicic jafnaði leikinn. Það var síðan Hilmar Árni Halldórsson sem tryggði Stjörnunni sigurinn.

Óskar Örn Hauksson var ekki með Stjörnunni í leiknum í dag.

Í B-riðli áttust við Víkingur og Valur á Víkingsvellinum. Þar fóru Íslandsmeistararnir með sigur af hólmi. Birnir Snær Ingason, nýr leikmaður Víkings, skoraði fyrra mark liðsins og Kristall Máni Ingason það síðara.

Birkir Heimisson minnkaði muninn fyrir Val en nær komust gestirnir ekki.

Stjarnan 2-1 KR
1-0 Þorsteinn Már Ragnarsson
1-1 Stefan Alexander Ljubicic
2-1 Hilmar Árni Halldórsson

Víkingur 2-1 Valur
1-0 Birnir Snær Ingason
2-0 Kristall Máni Ingason
2-1 Birkir Heimisson
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner