Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. nóvember 2021 11:20
Aksentije Milisic
Sjáðu stórfurðulegt sjálfsmark í La Liga
Bilbao slapp með skrekkinn.
Bilbao slapp með skrekkinn.
Mynd: Getty Images
Í gær áttust við Athletic Bilbao og Granada í La Liga deildinni á Spáni.

Leikurinn var hinn fjörugasti og endaði með 2-2 jafntefli. Gestirnir frá Granada leiddu leikinn lengi vel en það var hins vegar Luís Maximiano sem skoraði sjálfsmark á 76. mínútu og þar við sat.

Markið var mjög skrautlegt en það hófst með því að Inaki Willams komst einn í gegn. Inaki kom boltanum ekki yfir línuna og í kjölfarið fór athyglisverð atburðarrás af stað.

Þegar gestirnir virtust vera bjarga marki þá á einhvern hátt fór boltinn af Maximiano og í netið. Eins og má sjá á Maximiano þá leyndust vonbrigðin sér ekki.

Markið skrautlega má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner